Bílar í vefsýningarsal

Rými fyrir nýjar upplifanir

Glænýr Mazda6e sameinar hágæðaefni og háþróaða tækni. Hann er rafbíll sem er hannaður til að skila bæði kraftmikilli og sparneytinni akstursupplifun. Bíllinn býður upp á allt að 552 km drægni og eldsnögga hraðhleðslu. Farþegarýmið byggir á japanska hugtakinu „Ma“, fegurð tómsins, og er með opnu panorama glerþaki sem skapar róandi andrúmsloft.

Kynntu þér Mazda6e

Sportlegt útlit með japanskri fagurfræði

Straumlínulagað form Mazda6e fangar fegurð hreyfingar í anda „Kodo – Soul of Motion“ hönnunar Mazda. Rafdrifin vindskeið, nýtt framljósakerfi og skarpar hliðarlínur undirstrika sportlegt yfirbragð bílsins.

FÁGAÐIR LITIR

Mazda6e rafbíllinn fæst í fjölbreyttu og fáguðu litaúrvali.

Svört innrétting

Takumi

Rafstillanleg framsæti klædd svörtu leðurlíki. Ökumannssæti stillanlegt á 10 vegu með minni, farþegasæti með 4 stillingum. Svört loftklæðning í þaki. Hiti og loftkæling í báðum sætum.

Ljós innrétting

Takumi

Rafstillanleg framsæti klædd ljósu leðurlíki. Ökumannssæti stillanlegt á 10 vegu með minni, farþegasæti með 4 stillingum. Svört loftklæðning í þaki. Hiti og loftkæling í báðum sætum.

Brún innrétting

Takumi Plus

Brúnt Nappa leður og rúskinnslíki á sætum. Svört klæðning í þaki. Ökumannssæti stillanlegt á 10 vegu með minni, farþegasæti með 4 stillingum. Svört loftklæðning í þaki. Hiti og loftkæling í báðum sætum.

Mazda6e appið

Nýi Mazda6e er með sérhannað app sem tengir þig beint við bílinn þinn. Með fjölmörgum fjarstýringarmöguleikum auðveldar appið þér að eiga og nota bílinn á einfaldan, þægilegan og ánægjulegan hátt.

Tæknilegar upplýsingar og ábyrgð

Mazda6e Long Range

  • 80 kWh drifrafhlaða
  • Afl: 180 kW
  • Allt að 552 km drægni
  • 95 kW DC hleðslustýring
  • Hleður frá 10-80% á u.þ.b. 45 mínútum
  • Orkunotkun: 16.5 kWh/100 km

Mazda6e rafbíllinn er með framlengda 6 ára verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.