Mikilvæg tilkynning: Lokun 2G- og 3G-netkerfa í Evrópu og á Íslandi

Farsímafyrirtæki víðs vegar um Evrópu, þar á meðal á Íslandi, eru smám saman að loka 2G- (GSM) og 3G- (UMTS) netkerfum sem hluta af yfirfærslu í hraðari og háþróaðri tækni, svo sem 4G og 5G.


Þessar breytingar eru í höndum farsímafyrirtækja í hverju landi fyrir sig og hvorki Mazda né aðrir bílaframleiðendur hafa áhrif á ferlið.


Hvað þýðir þetta fyrir þig?

Lokun 2G- og 3G-netkerfa hefur áhrif á eCall-kerfið í tilteknum bílum frá Mazda.
Það skiptir engu máli í hvaða landi þú keyptir Mazda-bílinn þinn, því hann verður einnig fyrir áhrifum ef ekið er til eða í gegnum svæði þar sem 2G- og 3G-net eru ekki lengur í boði.

Á Íslandi hafa fjarskiptafyrirtækin þegar hafið útfösun 2G- og 3G-netkerfa, og áætlað er að bæði netkerfin verði lögð af fyrir lok árs 2025, samkvæmt upplýsingum frá Fjarskiptastofu. Þar til lokuninni lýkur mun eCall-kerfið í viðkomandi bílum áfram virka á Íslandi.


Hvað breytist varðandi eCall?

eCall-kerfið, sem annaðhvort sjálfvirkt eða handvirkt hefur samband við neyðarþjónustu ef alvarlegt slys verður, verður í nokkrum Evrópulöndum fyrir áhrifum vegna lokunar 2G- og 3G-netkerfa. Þetta á við um bíla sem eru eingöngu með eCall-kerfi sem notar 2G- eða 3G-net.

Sögulega hefur eCall-kerfið notast við 2G- eða 3G-tækni, í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 2018/858, sem krafðist þess að framleiðendur notuðu þessa tækni til loka árs 2024. Í sumum tilvikum var heimilað að halda notkuninni áfram til loka árs 2027.


Af þeim sökum eru allir Mazda-bílar sem nú eru í notkun með eCall-kerfi sem byggir eingöngu á þessum tækni.

Þegar farsímafyrirtæki hætta að styðja 2G- og 3G-net mun eCall-kerfið í þessum bílum ekki lengur geta tengst neyðarþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir áhrifum af lokuninni, jafnvel þótt bílarnir hafi uppfyllt öll lagaskilyrði þegar þeir voru samþykktir til framleiðslu.


eCall-kerfið í eftirfarandi Mazda-bílum verður fyrir áhrifum af lokun 2G- og 3G-netkerfa:

  • Mazda2 Hybrid – framleiðsla hófst í desember 2021

  • Mazda3 – framleiðsla hófst í nóvember 2018

  • Mazda6e – framleiðsla hófst í mars 2025

  • Mazda MX-30 og MX-30 R-EV – framleiðsla hófst í maí 2020

  • Mazda CX-30 – framleiðsla hófst í apríl 2019

  • Mazda CX-60 – framleiðsla hófst í júní 2022

  • Mazda CX-80 – framleiðsla hófst í júní 2024

Tímasetningar breytinganna eru mismunandi eftir löndum og ráðast af áætlunum farsímafyrirtækja í hverju þeirra.


Þar sem hvert Evrópuland, þar á meðal Ísland, hefur sína eigin áætlun um lokun 2G- og 3G-netkerfa er mælt með að skoða vefsíður farsímafyrirtækja eða Fjarskiptastofu til að fá upplýsingar um nákvæmar dagsetningar.


Á Íslandi hafa fjarskiptafyrirtækin Sýn, Nova og Síminn þegar hafið lokun netkerfanna og stefna að því að ljúka ferlinu fyrir árslok 2025.

Hjá Mazda viljum við upplýsa og styðja við viðskiptavini okkar eftir því sem stafrænt umhverfi þróast. Ekki er gert ráð fyrir að hægt verði að uppfæra Mazda bíla með 2G/3G í nýrri tækni.


* Vegna stigvaxandi lokunar 2G- og 3G-netkerfa mun aðgengi að eCall-þjónustunni skerðast í sumum löndum, þar á meðal á Íslandi, eftir því sem útfösun netkerfanna heldur áfram. Aðgengi þjónustunnar fer eftir farsímafyrirtækjum á hverjum stað og getur því verið mismunandi eftir markaðssvæðum.

---------------------------------

Algengar spurningar um lokun 2G- og 3G-netkerfa á Íslandi - FAQ

Af hverju á þessi breyting sér stað?

Frá og með 1. janúar 2026 munu farsímafyrirtæki á Íslandi hætta að bjóða upp á 2G- og 3G-farsímaþjónustu. Þetta er gert til að losa tíðnisvið fyrir 4G- og 5G-tækni, sem er hraðari, áreiðanlegri og skilvirkari en 2G og 3G.

Þessar breytingar eru framkvæmdar af farsímafyrirtækjum í hverju landi fyrir sig og eru ekki á forræði Mazda né annarra bílaframleiðenda.


Hver ber ábyrgð á lokun þessara netkerfa?

Farsímafyrirtæki í hverju landi bera ábyrgð á að hætta notkun 2G- og 3G-tækni þegar þau færa þjónustu yfir í nýrri nettækni.


Hefur þessi breyting aðeins áhrif á Mazda eigendur á Íslandi?

Nei. Lönd víðs vegar um Evrópu munu hætta að nota 2G og 3G til að flytja fjarskiptaþjónustu yfir á 4G og 5G.

Í Evrópu er Ísland fyrsta landið til að ljúka þessari yfirfærslu og leggja 2G- og 3G-netkerfi af.

Mazda-bílar sem reiða sig á 2G- eða 3G-net fyrir Connected Vehicle Services og/eða eCall verða fyrir áhrifum ef ekið er um svæði þar sem 2G- og 3G-net eru ekki lengur í boði.


Hvenær mun lokunin eiga sér stað á Íslandi?

Lokunin fer fram stigvaxandi hjá öllum farsímafyrirtækjum, og gert er ráð fyrir að 2G og 3G verði hætt fyrir árslok 2025.

Nákvæmar upplýsingar má finna hér:


Hvaða Mazda-bílar verða fyrir áhrifum af lokun 2G- og 3G-netkerfa á Íslandi?

Netbreytingar geta haft áhrif á bíla sem reiða sig á 2G- eða 3G-tækni fyrir tengdar þjónustur.

Nýrri Mazda-bílar sem þegar starfa á 4G- og 5G-tækni munu áfram geta notað Mazda Connected Vehicle þjónustur. Þetta á við um Mazda6e og nýjustu útgáfu Mazda CX-5.

Hins vegar reiðir eCall í Mazda6e og nýjustu Mazda CX-5 á 2G/3G tækni, þannig að eCall-virknin mun verða fyrir áhrifum í þessum gerðum.

Hjá öðrum gerðum og eldri bílum geta tilteknir tengdir þjónustuþættir breyst á einhverjum tímapunkti. Mazda er að greina hvaða bílar verða fyrir áhrifum og hvernig.


Hvaða tengdu þjónustur verða fyrir áhrifum?

Í bílum sem ekið er um svæði þar sem 2G- eða 3G-net eru ekki lengur í boði mun lokunin hafa áhrif á aðgengi að sjálfvirka neyðarhringingakerfinu eCall, sem byggir á þeirri tækni.

Að auki gæti lokunin haft áhrif á ákveðna Mazda Connected Vehicle þjónustu í sumum bílum þegar þeir eru eknir um slík svæði.

Ísland er fyrsta landið sem lokar 2G og 3G, og minni reynsla liggur fyrir um áhrif þess á tengdar þjónustur. Málið er enn til skoðunar.


Mun þessi breyting hafa áhrif á akstur eða notkun bílsins?

Nei. Lokun 2G- og 3G-netkerfa hefur engin áhrif á aksturseiginleika eða almenna notkun Mazda-bílsins.

Hins vegar er mögulegt að tilteknar tengdar þjónustur verði ekki í boði að einhverjum tímapunkti.


Hvernig tengist þetta eCall?

Lokun 2G- og 3G-netkerfa hefur áhrif á eCall-kerfið í Mazda-bílum sem byggja á þessari tækni. Eftir lokun netkerfanna verður eCall ekki lengur tiltækt í þessum bílum.

Þetta á við óháð því í hvaða landi bíllinn var keyptur; þjónustan ræðst eingöngu af því hvaða net eru í boði þar sem ekið er.