Mazda6e hlýtur titilinn best hannaði bíll ársins 2026

07.04.2026

Mazda tilkynnir með stolti að alrafmagnaður Mazda6e hafi verið valinn best hannaði bíll ársins 2026. Niðurstaðan var kynnt á New York International Auto Show við afhendingu World Car Awards.

World Car Awards hafa verið veitt árlega frá 2004 og eru valin af alþjóðlegri dómnefnd sem samanstendur af um 100 bílablaðamönnum frá 33 löndum. Í ár bar Mazda6e sigur úr býtum í hönnunarflokki fram yfir 89 aðra tilnefnda bíla. Opinber heiti verðlaunanna er „World Car Design of the Year“ og er þetta í þriðja sinn sem Mazda hlýtur þann heiður.

Sömu verðlaun hafa áður fallið í skaut Mazda fyrir Mazda MX-5 árið 2016 og Mazda3 árið 2020. Viðurkenningin fyrir Mazda6e markar mikilvægan áfanga fyrir Mazda sem heldur áfram að þróa og fínstilla hönnunarnálgun sína fyrir nýja kynslóð rafbíla.

Mazda6e rafbíllinn sýnir nýja túlkun á hönnunarstefnu Mazda, „Kodo. Soul of Motion“, sem hefur verið aðlöguð að rafvæddri framtíð. Glæsileg hlutföll, mótaðir yfirborðsfletir og hlýlegt, aðlaðandi innanrými endurspegla jafnvægi milli hreyfingar, samhljóms og nákvæmni sem á rætur að rekja til japanskrar hefðar. Útkoman er rafbíll sem vekur tilfinningaleg tengsl og heldur jafnframt tryggð við grunngildi Mazda.

„Við erum afar stolt að hljóta verðlaunin ‘2026 World Car Design of the Year’ fyrir Mazda6e. Viðurkenningin endurspeglar metnað hönnunarteyma okkar um allan heim og stöðuga leit þeirra að skýrleika, listrænni framsetningu og japanskri hönnun í nútímalegum rafbíl. Við erum stolt af því að Mazda6e höfðar til bæði viðskiptavina og sérfræðinga um heim allan,“ segir Jo Stenuit, hönnunarstjóri Mazda Motor Europe.

Verðlaunin fyrir bestu bílahönnun ársins 2026 undirstrika styrk hönnunarmáls Mazda á sama tíma og fyrirtækið hraðar rafvæðingu. Með fleiri glæsilegum rafbílum á borð við Mazda CX-6e í þróun heldur Mazda áfram að skapa bíla þar sem fegurð, handverk og samhljómur endurspeglast í hverju smáatriði.

Smelltu hér til að skoða Mazda6e á vefnum okkar.