Mazda CX-80 er öruggasti bíllinn í sínum flokki

16.01.2025

Mazda CX-80 hlaut nýverið viðurkenningu sem öruggasti bíllinn í sínum flokki í árekstrarprófunum. Bíllinn, sem er nýtt flaggskip í flota Mazda og bæði hannaður og smíðaður í Japan, býður upp á framúrskarandi öryggi, þægindi, notagildi og fjölhæfni.

Nýr Mazda CX-80 var valinn „Best in Class Large SUV“ af Euro NCAP í nýjustu prófunum samtakanna. Um er að ræða afar virta viðurkenningu sem sýnir skýrt hversu mikla áherslu Mazda leggur á öryggi og nýsköpun.

Árið 2024 prófaði Euro NCAP alls 44 bíla, þar sem Mazda CX-80 skilaði hæstu heildareinkunn í flokki stórra jeppa og bar naumlega sigur úr býtum gegn Audi Q6 e-tron. Úrslitin endurspegla eldmóðinn sem Mazda hefur gagnvart því að tryggja öryggi farþega sinna.

Mazda CX-80 hlaut 92% í einkunn fyrir öryggi fullorðinna farþega og fékk fullt hús stiga í hliðar- og aftanárekstrarprófum. Bíllinn náði 88% í einkunn fyrir öryggi barna, sem tryggir þá vernd sem yngstu farþegarnir þurfa. Bíllinn fékk 84% fyrir öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og 79% fyrir aðstoðaröryggiskerfi, sem undirstrikar metnað Mazda í að innleiða nýjustu öryggistækni í bíla sína.

Útkoman úr árekstrarprófunum endurspeglar þægindi, fjölhæfni og notagildi Mazda CX-80, sem gerir hann að framúrskarandi kosti í sjö sæta jeppaflokknum. Flaggskip Mazda er hannað og smíðað í Japan og sýnir glöggt fram á hönnunar- og verkfræðiþekkingu framleiðandans. Framúrskarandi öryggiseinkunnirnar undirstrika einbeittan vilja Mazda til að vernda viðskiptavini sína. Fimm stjörnu einkunnin byggir á Skyactiv Multi-Solution Scalable Architecture bílsins, sem bætir aksturseiginleika bílsins.

Mazda CX-80 er rúmbesti bíll Mazda í Evrópu, með þrjár sætaraðir og framúrskarandi þægindi, auk þess sem hann er fjölhæfur, með háþróaða tækni og býður upp á einstöku akstursánægjuna sem einkennir alla Mazda bíla.

Euro NCAP var stofnað árið 1996 til að auka öryggi í bílgreininni og veitir árlega þeim bílum sem fá hæstu heildareinkunn titilinn „Best in Class”. Matið auðveldar neytendum að velja öruggustu bílana sem völ er á. Til að komast í úrslit reiknar Euro NCAP veginn stigafjölda út frá fjórum öryggisflokkum: öryggi fullorðinna, öryggi barna, öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og öryggisbúnað. Niðurstaðan er síðan notuð til að bera bíla saman, og einungis þeir sem uppfylla strangar öryggiskröfur hljóta titilinn „Best in Class“.

Smelltu hér til að lesa allt um Mazda CX-80